Fréttir
Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags haldinn í Alþingishúsinu 5. febrúar 2026
Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags var haldinn í Alþingishúsinu, fundarsal Alþingis, fimmtudaginn 5. febrúar 2026. Félagið var stofnað af alþingismönnum 19. ágúst 1871. Í lögum félagsins er það ákvæði að aðalfundir þess skuli haldnir á Alþingi annað hvert ár. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setti fundinn og stjórnaði honum. Sigurður Helgi Pálmason alþingismaður var fundarritari.
Dr. Guðrún Kvaran, prófessor emerítus, forseti Hins íslenska þjóðvinafélags, sat fundinn af hálfu forstöðumanna þess. Hún skýrði í stuttu máli frá störfum félagsins frá síðasta aðalfundi og gerði grein fyrir reikningum þess. Karl M. Kristjánsson, dr. Lára Magnúsardóttir og dr. Margrét Eggertsdóttir voru endurkjörin í stjórn.
Endurskoðendur voru kjörnir Sigurður Jónsson frá Arnarvatni og Helgi Bernódusson fyrrv. skrifstofustjóri Alþingis.
Þjóðvinafélagið gefur út ársritin Almanak og Andvara svo sem það hefur gert um 150 ár.