Afmælismálþing um framtíðina

Í tilefni af því að Hið íslenska þjóðvinafélag átti 150 ára afmæli árið 2021 ákvað stjórn félagsins að halda málþing undir yfirskriftinni Bjartsýnisspá fyrir árið 2071. Þingið verður í Grósku í Vatnsmýri, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík, laugardaginn 1. október kl. 14:00–16:15.

Hugmyndin byggist á því sem segir í lögunum um tilgang félagsins, að með því skuli „efla samheldi og stuðla til framfara landsins og þjóðarinnar í öllum greinum.“ Með málþinginu er búinn til vettvangur til að velta fyrir sér framtíðinni úr tengslum við krytur nútímans og ártalið 2071 varð fyrir valinu vegna þess að það verður 200 ára afmælisár félagsins. Enginn er sérfræðingur um framtíðina og ræðumenn tala frá eigin brjósti. Þeir hafa fjölbreytta þekkingu, eru á ólíkum aldri og úr ýmsum þjóðfélagsgeirum.


Erindi flytja:

  • Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands: Áfangastaður í veröldinni
  • Berglind Ásgeirsdóttir. Hún var ráðuneytisstjóri, framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs, sendiherra og aðstoðarforstjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD: Nýr mannauður
  • Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða: Hver mun þá kalla eftir stjórnarskrá?
  • Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði á Bifröst: Landfesti lýðræðis
  • Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og framkvæmdastjóri: Herbergi 250
  • María Elísabet Bragadóttir rithöfundur: Orðið hefur umbreytingarmátt


Að erindum loknum leiðir Friðrik Pálsson hótelhaldari umræður. Aðrir þátttakendur í þeim eru: 

  • Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur
  • Logi Pedro Stefánsson listamaður
  • Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari