Almanak 2008 er komið út

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags fyrir árið 2008, 134. árgangur, er komið út. Í almanakinu sjálfu er m.a. að finna dagatal með upplýsingum um gang himintungla, messur kirkjuársins, sjávarföll, hnattstöðu Íslands o.fl. Almanakinu fylgir Árbók Íslands 2006 í samantekt Heimis Þorleifssonar. Í Árbók Íslands er fróðleikur um árferði, atvinnuvegi, stjórnmál, úrslit Íslandsmóta, náttúruhamfarir, slys, mannalát, verklegar framkvæmdir, vísitölur, verðlag o.s. frv.

Umsjónarmaður Almanaksins er Jóhannes Halldórsson, dreifingu annast Sögufélag, Fischersundi 3 og prentun fór fram í Prentsmiðjunni Odda hf.