Fréttir
Almanak 2026 og Árbók Íslands 2024 komið út
Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags 2026 ásamt Árbók Íslands 2024 er komið út.
Er þetta 152. árgangur ritsins sem fyrst var gefið út fyrir árið 1875. Í fyrri hluta þess er að finna ýmsar upplýsingar um núverandi ár, s.s. sjávarföll, helgidaga og gang himintungla. Í síðari hlutanum er fjallað um atburði ársins 2024, t.d. á sviði menningar, stjórnmála og efnahags.
Arnór Gunnar Gunnarsson tók saman Árbók Íslands en dr. Gunnlaugur Björnsson og dr. Páll Jakobsson sáu um gerð almanakshlutans.