Andvari 2017

Andvari-2017---netAðalgrein Andvara 2017 fjallar um Björn Þorsteinsson sagn­fræðing og er hún samin af  Gunnari F. Guð­munds­syni sagnfræðingi. Björn var tímamótamaður í fræðigrein sinni á Íslandi, nálgaðist sögu þjóðarinnar með öðrum hætti en fyrri fræðimenn, út frá þjóðfélags þróun fremur en  ævisögum einstakra forustumanna. Einkum fjallaði hann um sögu fyrri alda og ekki síst erlend áhrif á Ísland. „Enska öldin“ nefnist eitt helsta rit hans og fyrir það varð hann doktor frá Háskóla Íslands.

Aðrar greinar í Andvara eru þessar: 

  • Hannes Pétursson ritar „Tvennt í heimi“, um fræga vísu eftir Steingrím Thorsteinsson í kvæðinu Lífshvöt, sem að öðru leyti er gleymt.
  • Hjalti Hugason ritar um séra Pál Sigurðsson í Gaulverjabæ og postillu hans , en hún hafði  veruleg  áhrif til að breyta afstöðu manna til trúmála í  lok nítjándu aldar og upphafi hinnar tuttugustu. 
  •  Ármann Jakobsson fjallar um útgáfur Íslendingasagna fyrir almenning fyrr á tíð og einkum mikla útgáfu sem Sigurður Kristjánsson stóð fyrir og var hin fyrsta sem náði til alls almennings, svo sagt hefur verið um Sigurð að hann hafi fært þjóðinni Íslendingasögurnar. 
  • Soffía Auður Birgisdóttir og Snævarr Guðmundsson rita saman grein um „stjörnuglópinn“ Þórberg Þórðar­son. Það er bókmenntaleg og stjarnfræðileg athugun á hinum mikla áhuga  Þórbergs á stjörnunum sem fram  kemur í sögunni um elskuna hans Íslenskum aðli.
  • Páll Bjarnason birtir stutta grein um ástir Jónasar Hallgrímssonar og Þóru Gunnarsdóttur, samkvæmt heimild sem er hið fyrsta sem kom fyrir eyru fólks um það efni, en ekki hefur birst fyrr á prenti.  
  • Loks er grein eftir Auði Aðalsteinsdóttur um sögur eftir Auði Övu Ólafsdóttur.

     Andvari er 166 blaðsíður. Ritstjóri er Gunnar Stefánsson og ritar hann inngangspistil í ritið.